Við bjóðum upp á úrval snjallra posa sem henta þínum rekstri - þráðlausir, notendavænir og kassakerfistengdir.
Pay-By-Link (Greiðslubeiðnir)
Sendir viðskiptavini beiðni um greiðslu í gegnum SMS eða netfang.
Hraðvirkar færslur
Greiðslur auðkenndar á 1,5 sekúndum að meðaltali.
Sjálfvirk innsending á færslum
Engin handavinna – posinn sér sjálfur um að senda inn færslurnar.
Kassakerfistengingar
Virkar með fjölda þjónustuaðila á Íslandi.
Tekur við öllum helstu greiðslumátum
Visa, Mastercard, Amex , Apple Pay og Google Pay.
Allar færslur birtast í appinu
Þar er líka hægt að endurgreiða, stilla aðgangsheimildir og skoða uppgjör

6.200 kr.
+ VSK
Vinsælasti posinn okkar í dag! Með SUNMI P2 geturðu tekið áhyggjulaust við greiðslum - þessi öflugi posi er gerður fyrir fyrirtæki í hröðu umhverfi sem þurfa á áreiðanleika, hraða og skilvirkni að halda. Posinn er þunnur, með góða rafhlöðuendingu og stóran skjá og því er þetta fullkomin greiðslulausn fyrir þau sem vilja hafa hraðann á.
Engin falin gjöld, ekkert vesen — við viljum einfalda seljendum okkar dagleg störf, svo öll óþarfa gjöld heyra sögunni til.
6.200 kr.
+ VSK
PAX A920 Pro posinn tengist við ýmis kassakerfi, en er einnig vinsæll sem stand-alone posi. Bæði er hægt að tengja hann við Wifi eða 4G en þeir eru með sérstöku SIM korti sem gerir það að verkum að posinn velur sjálfur bestu mögulegu nettengingu sem er í boði. Ef kemur til þess að WiFi samband rofnar tengist posinn sjálfkrafa 4G.
Engin falin gjöld, ekkert vesen — við viljum einfalda seljendum okkar dagleg störf, svo öll óþarfa gjöld heyra sögunni til.


6.200 kr.
+ VSK
PAX A80 er með takkaborði, stórum skjá og öflugri nettengingu sem yfir WiFi eða Ethermet-snúru. Skynjarinn á þessum posa er einkar næmur, sem þýðir að hægt er að leggja kort eða síma upp við miðjan skjáinn til að framkvæma greiðslu. PAX A80 hefur reynst sérstaklega vel þegar hann er tengdur við kassakerfi.
Engin falin gjöld, ekkert vesen — við viljum einfalda seljendum okkar dagleg störf, svo öll óþarfa gjöld heyra sögunni til.
6.200 kr.
+ VSK
PAX A35 er nettur og flottur, en öflugur og hentar eingöngu í tengingu við kassakerfi. Hann er með takkaborð og hægt er að tengja hann með netsnúru til að tryggja örugga nettengingu.
Engin falin gjöld, ekkert vesen — við viljum einfalda seljendum okkar dagleg störf, svo öll óþarfa gjöld heyra sögunni til.


6.200 kr.
+ VSK
PAX A77 er minnsti posinn okkar sem smellpassar í vasann og er þægilegur á ferðinni. Hann er með stóran skjá og líkist helst farsíma. Hann hentar ekki í tengingar við kassakerfi og er ekki með prentara svo hann býður eingöngu upp á rafrænar kvittanir.
Engin falin gjöld, ekkert vesen — við viljum einfalda seljendum okkar dagleg störf, svo öll óþarfa gjöld heyra sögunni til.