Vörur
Athugið: Rukkað verður áfram fyrir posann í hverjum mánuði, samkvæmt verðskrá okkar, ef ekki skilað.
Verðskrá
Hjálp
Stjórnarhættir
Teya Iceland hf. er staðráðið í því að stuðla að góðum stjórnarháttum og tryggja eftirfylgni við þau lög og reglur sem um starfsemi félagsins gilda.
Stjórn Teya Iceland hf.
Stjórn Teya Iceland hf. samanstendur af fimm aðalmönnum og tveimur varamönnum. Þessir aðilar eru kjörnir árlega á aðalfundi. Stjórnin hefur æðsta ákvörðunarvald í málefnum félagsins á milli hluthafafunda, nema í þeim tilvikum þar sem lög eða samþykktir félagsins kveða á um annað.
Ali Zaynalabidin H. Mazanderani
STJÓRNARFORMAÐUR
Thiago Dos Santos Piau
STJÓRNARMAÐUR
Thomas Mylrea-Lowndes
STJÓRNARMAÐUR
Auður Björg Jónsdóttir
STJÓRNARMAÐUR
Ólöf Helga Jónsdóttir
STJÓRNARMAÐUR
Varamenn
Kjartan Þórisson
VARAMAÐUR
Yvonne Valerie Calvert
VARAMAÐUR
Starfsreglur stjórnar Teya Iceland hf.
Starfsreglur stjórnar eru settar á grundvelli 70. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög og 54. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
Starfskjarastefna
Starfskjarastefna Teya Iceland hf. er sett á grundvelli 79. gr. a. laga nr. 2/1995 um hlutafélög og ákvæði laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
Samþykktir
Samþykktir Teya Iceland hf. voru samþykktar hinn 23. mars 2023.
Director
Forstjóri er ábyrgur fyrir daglegum rekstri Teya Iceland hf. í samræmi við stefnu og ákvarðanir stjórnar. Það er enn fremur í höndum forstjóra að tryggja að starfsemi Teya Iceland hf. sé ávallt í samræmi við samþykktir félagsins og viðeigandi lagaramma.
Brian Jeffrey Gross
FORSTJÓRI
Undirnefndir stjórnar
Undirnefndir stjórnar eru tvær. Stjórn kýs nefndarmenn undirnefnda og skipar formenn þeirra. Nefndirnar eru allar skipaðar stjórnarmönnum.
Endurskoðunarnefnd
Endurskoðunarnefnd sem skipuð er þremur stjórnarmönnum aðstoðar stjórn við að uppfylla eftirlitsskyldur sínar vegna fjárhagsupplýsinga, innra eftirlits, endurskoðunar og eftirlits við fylgni við lög og reglur.
Nefndin samanstendur af Auði Björgu Jónsdóttur, Thiago Dos Santos Piau og Ólöfu Helgu Jónsdóttur
Áhættunefnd
Áhættunefnd stjórnar sem skipuð er þremur stjórnarmönnum sinnir ráðgjafar- og eftirlitshlutverki fyrir stjórn Teya Iceland hf., m.a. vegna mótunar og innleiðingar á áhættustefnu og áhættuvilja félagsins.
Nefndin samanstendur af Ali Zaynalabidin H. Mazanderani, Auði Björgu Jónsdóttur og Thomas Mylrea-Lowndes.